Árið 1919 hófst flug á Íslandi með flugtaki fyrstu flugvélarinnar hér á landi úr
Vatnsmýrinni. Reykjavíkurflugvöllur er fyrsti flugvöllur Íslendinga og var
byggður í sinni núverandi mynd árið 1941 af breska hernámsliðinu. Flestir
landsmenn telja sig hafa tilkall til Reykjarvíkurflugvallar, eins og kom svo skýrt
fram þegar kosið var um staðsetningu hans í mars 2001 en þá var mikið fjallað
um Reykjarvíkurflugvöll sem flugvöll allra landsmanna og mikilvægi hans í
Þróun og horfur í innanlandsflugi á Íslandi RHA
desember 2001 bls. 18
innanlandssamgöngum. Reykjarvíkurflugvöllur hefur ákveðna sérstöðu í
íslensku innanlandsflugi því hann þjónar sem móðurstöð fyrir það og hefur
stór hluti flugfélagana miðstöðvar sínar þar. Samkvæmt loftfaraskrá
Flugmálastjórnar er Reykjavíkurflugvöllur nú miðstöð 13 íslenskra flugrekenda,
sem samtals reka 83 loftför